Wednesday, March 5, 2008

Eldgos og svartar strendur

Ég eldfjallaeyjubúinn (sem aldrei hefur séd íslenskt eldgos) hélt ég hefdi séd alvöru eldgos í Chile, en thad var nú ekkert samanborid vid Volcan Pacaya. Stód svona 4 metra frá hraunstraumnum, alveg hreynt magnad.

Annars fór ég í smá ferdalag um helgina til Monterrico vid Kyrrahafid, sleikti sólina, svaf og lifdi á fiski og ferskri kokosmjólk (beint úr kokoshnetunni). Öldugangurinn tharna var svakalegur, aetladi rétt ad dífa tánum í Kyrrahafid, en tharna er thad allt eda ekkert. Hélt mig thví mestmegnis vid sundlaugina, sem var ljúft.

Kvedjur úr sólinni.

2 comments:

Kristín Rut said...

Í guðanna bænum farðu nú ekki að láta Kyrra- (talandi um rangnefni) hafið stela þér!

Sástu ekki eldgos á Havæ? Var það kannski á e-i annarri eyju?

Svo þurfum við að redda okkur svona útlendingakaffihúsum hér á Íslandi.

Jæja, verð að stökkva yfir Snorró að kíkjá ANTM ;) Við huxum alltaf til þín þegar við erum að glápa!

Anonymous said...

Vei! En gaman að geta fylgst með, þarf líka að taka glósur fyrir ferðina mína :)