Sunday, March 30, 2008

Sófadagsumraedur

Mig dreymdi í nótt ad ég vaeri sest á thing. Skildi reyndar ekki alveg hvernig ég komst thangad, thví ekki mundi ég eftir ad hafa tekid thátt í kostningabaráttu. Kristín Rut vinkona var líka komin á thing og virtist vera álíka hissa á thessu og ég. En allavega thá voru sòfadagsumraedur... sátum öll í litlum sófum og raeddum heilbryggdismál, med eda à móti einkavaedingu.

Kristín Rut tók til máls úr sófanum sínum, en thví midur var thad ekkert sérstaklega málefnalegt, held èg hafi thad ekkert eftir hér. Thá maetti Hekla vinkona til leiks og henni fannst augljóslega einkavaeding alveg jafn mikid út í hött, thví hún tók upp á thví ad frussa og vid yngra fólkid tharna sameinudumst í einn stóra frusskór. Draumurinn endadi svo á thví ad vid vorum farin ad dansa uppi í litlu sófunum okkar vid dynjandi teknótónlist.

Ég vaknadi threytt en ótrúlega sátt thví lagid var svo djö gott.

Hressandi draumur.

Sunday, March 23, 2008

Gledilega páska!

Thetta voru sennilega lengstu og hátídlegust páskar sem ég hef upplifad. Skemmtilega ödruvísi en ég er vön. Myndir segja meira en mörg ord.
Alfombra eda teppi sem baejarbúar búa til fyrir framan heimili sín eda fyrirtaeki. Efnividurinn er litad sag, blóm og strá. Sumir búa til svona teppi fyrir hverja skrúdgöngu.

Tharna koma their svo marserandi yfir teppin med líkneski kirkjunnar sinnar, klaeddir í fjólublá kubbla.

Börnin taka líka thátt.

Á föstudaginn langa eftir kl. 3 eru svo allir svartklaeddir.

Annars er ég ekki búin ad fá neitt súkkuladi í tilefni dagsins, held ég hlauti og kaupi eitt slíkt á eftir. Keypti mér einmitt súkkuladi um daginn, vandadi mig ógurlega vid ad velja eitthvad gott Guatemalískt, en thegar ég svo aetladi ad fara ad borda thad thá var thad bara danskt.

Saturday, March 15, 2008

Ég á Pacaya


Thetta virkar ekki alveg jafn svakalegt á mynd og life.

Af menntun

Var ad átta mig á thví ad Probigua er frábaer spaenskuskólinn.

Fór í tvaer áhugaverdar heimsóknir med honum í vikunni. Annarsvegar í stúlknaskóla fyrir 15-19 ára Maya-stúlkur. Í honum eru 2-3 stúlkur úr öllum Maya-samfélögum Guatemala, en thau eru víst 21 hér, thar af leidandi er 21 mismunandi tungumál talad í skólanum fyrir utan spaenskuna. Thetta finnst mér magnad, thví Guatemala er ekki svo mikid staerra en Ísland.
En í thessum skóla laera stúlkurnar til kennara og eftir 2 ár snúa thaer til thorpsins síns og kenna börnunum thar ad lesa og skrifa. Og af thví spaensku skólinn minn er "non-profit" thá rennur hlutu af gródanum í ad styrkja kennsluna í thessum skóla.

Og enn og aftur af thví skólinn minn er "non-profit" thá byggir hann einn nýjann skóla á hverju ári í thorpi thar sem ekki er fyrir skóli. Menntamál eru nefnilega ekki ofarlega á stefnuskránni hér í Guatemala. Ríkisstjórninni finnst ekki taka thví ad byggja skóla fyrir faerri börn en 70 og thar af leidandi eru ansi mörg thorp sem eru án skóla og thar af leidandi börn án menntunar.

Hin heimsókn vikunnar var einmitt í skóla sem Probigua var ad klára ad byggja og fengum vid nemendurnir ad vera vidstödd vígsluathöfnina. Thad var mikil gledi í thessu litla thorpi med nýja skólann og stódu börnin stollt med hönd á brjósti og sungu fyrir okkur thjódsöng Guatemala.

Ekki nóg med thad ad Probigua styrki menntun Maya-barna hér, thá gengur theim líka bara nokkud vela ad mennta mig og get ég nú stollt sagt ad ég er farin ad tala í nútíd, thátíd og frámtíd. Thví hef ég ákvedid ad dvelja eitthvad lengur hér í Antigua.

Wednesday, March 5, 2008

Eldgos og svartar strendur

Ég eldfjallaeyjubúinn (sem aldrei hefur séd íslenskt eldgos) hélt ég hefdi séd alvöru eldgos í Chile, en thad var nú ekkert samanborid vid Volcan Pacaya. Stód svona 4 metra frá hraunstraumnum, alveg hreynt magnad.

Annars fór ég í smá ferdalag um helgina til Monterrico vid Kyrrahafid, sleikti sólina, svaf og lifdi á fiski og ferskri kokosmjólk (beint úr kokoshnetunni). Öldugangurinn tharna var svakalegur, aetladi rétt ad dífa tánum í Kyrrahafid, en tharna er thad allt eda ekkert. Hélt mig thví mestmegnis vid sundlaugina, sem var ljúft.

Kvedjur úr sólinni.